Óháður ráðgjafi um gervigreind

Gervigreind sem skilar sér í afkomunni.

Ég heiti Ragnar Þ. Ágústsson og er gervigreindarstjóri til leigu (fractional CAIO). Ég hjálpa stjórnendum að ákveða hvar gervigreind borgar sig, setja reglur um notkunina og smíða það sem á að smíða. Þið eigið allt sem verður til og árangurinn er mældur í krónum. Ég sel engan hugbúnað og engin leyfi.

Hvar standið þið? Sjálfsmatið er átta spurningar og þið fáið svar strax. Fyrsti fundur er ein klukkustund og kostar ekkert.

Íslensk fyrirtæki og gervigreind
48%nota gervigreindarhugbúnað
14%hafa stefnu um gervigreind

Hagstofa Íslands, mars 2026. Svör frá 848 fyrirtækjum.

Staðan

Staðan í flestum fyrirtækjum

  • Áskrift sem allir nota svolítið

    Copilot eða ChatGPT er komið inn og fólk notar það í stök verk. Enginn veit hverju það skilar.

  • Tilraunir sem komust aldrei í bókhaldið

    Ein eða tvær prufur fóru vel af stað og fjöruðu svo út. Ekkert breyttist í rekstrinum.

  • Stjórn sem spyr um tölu

    Stjórnin spyr hvað gervigreindin geri fyrir félagið. Svarið þarf að vera í krónum.

Nálgun

Hvernig ég vinn

Ég vinn inni í fyrirtækinu með ykkar fólki.

  1. Samtal

    Við byrjum á samtali um hvað tekur tíma í rekstrinum, hvað kostar peninga og hvað þið viljið að gervigreind geri fyrir ykkur. Þið þurfið ekki að vita svarið fyrirfram.

  2. Greining

    Gervigreind ofan á gamalt ferli gerir gamla ferlið hraðara, en með sömu flöskuhálsum og sömu óþörfu skrefum. Því byrjar greiningin á einni spurningu um hvert verk. Ef við værum að byggja þetta í dag, myndum við byggja það svona? Síðan fer ég í gegnum kerfin, gögnin og verkin með ykkar fólki og segi hreint út hvar gervigreind borgar sig og hvað á að láta vera. Niðurstaðan er minnisblað sem forstjóri getur lagt fyrir stjórn.

  3. Framkvæmd

    Stundum er verkið stefna og notkunarreglur, stundum smíði. Smíðin getur verið tiltekt í gögnum, tenging milli kerfanna ykkar og gervigreindartólanna sem fólkið notar þegar, mælaborð eða erindreki (agent). Erindreki er forrit sem vinnur afmörkuð verk á ykkar gögnum eftir reglum sem þið setjið, til dæmis greiningu á tekjum og kostnaði eða á samskiptum við viðskiptavini. Ég hef rekið hefðbundin tölvukerfi í aldarfjórðung og veit hvernig er hægt að nálgast gögnin í þeim. Ég sé um samskiptin við birgja og rekstraraðila kerfa ykkar ef þess er óskað.

  4. Þið takið við

    Í vinnustofum lærir ykkar fólk að nota, reka og byggja ofan á það sem við gerum. Lausnina er auðvelt að laga þegar þarfirnar breytast eða betri tækni kemur fram. Daginn sem samstarfinu lýkur hættir ekkert að virka.

Fyrsta skref

Hvernig við byrjum

Við byrjum á samtali og ég sníð samstarfið að stærð ykkar og þörfum. Nánara efni, fyrirkomulag og verð fylgja eftir fyrsta fund.

  • Byrjið hér

    Fyrsti fundur

    Ein klukkustund

    Þið segið frá rekstrinum og því sem þið viljið að gervigreind leysi. Ég hlusta, spyr og segi hvað ég held að borgi sig að byrja á. Gott er að taka sjálfsmatið fyrir fundinn.

  • Stefna og notkunarreglur

    Tveir til þrír fundir

    Mörg fyrirtæki nota gervigreind án reglna. Með stjórnendum ákveðum við hvaða tól má nota, með hvaða gögnum og hver ber ábyrgð. Þið fáið notkunarreglur á einni blaðsíðu, stutta fræðslu fyrir starfsfólk og lista yfir þau verk sem borgar sig að skoða fyrst. Afurðin er ákvarðanir sem fólk fer eftir.

  • Greining

    Áður en nokkuð er smíðað

    Hvar gervigreind borgar sig hjá ykkur og hvað á að láta vera. Endurhugsað ferli fyrir hvert verk, kort af kerfum og gögnum, mælikvarði og grunnlína á hverju verki og skýr tillaga um næsta skref. Hún getur verið stefna, reglur, smíði eða ekkert. Umfangið fer eftir stærð fyrirtækisins.

  • Samstarf

    Sniðið að ykkur

    Gervigreindarstjóri til leigu (fractional CAIO) sem leiðir, smíðar eða hvort tveggja. Verkið nær yfir forgangsröðun, notkunarreglur, reglurnar sem fylgja hverri lausn, rýni á tilboðum seljenda og á því sem ykkar fólk eða aðrir smíða og skýrslur til stjórnar. Þegar það á við smíða ég líka með ykkar fólki. Takturinn og lengdin ráðast af stærð ykkar og þörfum, frá afmörkuðu verkefni hjá litlu fyrirtæki til fasts takts með stjórnendum hjá stóru. Allt skrifað í verksamning með skýrum lokadegi.

Líkön og ský eru alltaf á ykkar eigin reikningum, á kostnaðarverði og án álagningar.

Traust og öryggi

Það sem fylgir hverju verki

  • Hugbúnaður sem þið eigið

    Kóðinn, lyklarnir og öll umhverfi eru ykkar frá fyrsta degi. Þið eruð hvorki bundin mér né neinum tækniseljanda.

  • Reglur sem fylgja hverri lausn

    Lausnin fær aðeins lesaðgang í upphafi og hver aðgerð er skráð. Hverja lausn má stöðva strax án þess að hringja í mig.

  • Öryggi og persónuvernd

    Ég bar ábyrgð á upplýsingatækni og upplýsingaöryggi í fjármálafyrirtækjum undir eftirliti. Öryggið hjá ykkur tekur mið af því sem er í húfi.

  • Árangur sem þið getið sýnt

    Í krónum þar sem það er hægt og tölurnar eru bornar saman við bókhaldið. Þar sem það er ekki hægt notum við mælikvarða sem þið treystið.

  • Óháð ráðgjöf

    Enginn seljandi borgar mér. Ég tek hvorki söluþóknanir né tilvísunargjöld og hver tillaga nefnir valkostina sem voru skoðaðir.

Nánar um hvert atriði

Frumkvöðull

Ég smíða líka mitt eigið fyrirtæki

Það sem ég ráðlegg öðrum hef ég fyrst smíðað og rekið sjálfur.

Sóley

Ferðaþjónusta

Opið bókunarnet fyrir íslenska ferðaþjónustu. Ferðamenn tala við Sóleyju í Claude, ChatGPT, WhatsApp eða á vefnum. Sóley talar beint við bókunarkerfi ferðaþjónustuaðila og hótela.

  • Í Claude Connectors Directory frá ágúst 2026
  • Í ChatGPT frá september 2026
  • Hannað, smíðað og rekið af mér
soley.travel

Um mig

Ragnar Þ. Ágústsson situr í stól við glugga

Tuttugu og fimm ár í kerfum sem mega ekki stoppa

Ég hef smíðað og rekið kerfi í aldarfjórðung, mest í fjármálaþjónustu þar sem villur kosta peninga og kröfur eftirlitsaðila eru strangar. Ég var ellefu ár í London, stýrði hugbúnaðarþróun Landsbankans og var forstöðumaður upplýsingatækni hjá Fossum í gegnum samruna.

Í júlí 2026 fór ég að smíða mín eigin fyrirtæki og hjálpa öðrum að koma gervigreind í rekstur.

  1. 2026

    Cognia ehf.

    Óháður ráðgjafi um gervigreind og gervigreindarstjóri til leigu (fractional CAIO). Stofnandi Sóleyjar.

  2. 2023–2026

    Fossar fjárfestingarbanki

    Forstöðumaður upplýsingatækni.

  3. 2014–2023

    Landsbankinn

    Yfirmaður hugbúnaðarþróunar, síðar teymisstjóri í Mörkuðum og fjármálum.

  4. 2008–2014

    Man Group og GLG Partners, London

    Stýrði upplýsingatækni sjóðasjóða (Funds of Funds) hjá Man. Síðar smíði viðskiptakerfis (trading platform) hjá vogunarsjóðnum GLG.

  5. 2006–2008

    HSBC og Landsbanki, London

    Smíðaði kerfi fyrir áhættuvarnarbókhald (hedge accounting) hjá HSBC sem er enn í notkun. Síðar yfirmaður hugbúnaðarþróunar í Lundúnaútibúi Landsbankans.

  6. 2000–2003

    Eskill

    Stofnandi.

Executive MBA við Háskóla Íslands, útskrift 2027. BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Samstarf

Þegar verkefnið þarf meira en einn

Ég vinn með öðrum sjálfstæðum ráðgjöfum þegar verkefnið kallar á meira en einn, til dæmis stefnu fyrir stjórn, stöðumat í eftirlitsskyldu umhverfi eða að koma rekstri og ábyrgð í fastar skorður. Hvert okkar rekur sína stofu og ber ábyrgð á sinni vinnu. Þannig fáið þið breiðari þekkingu án stórrar ráðgjafarstofu og ég kynni ykkur fyrir þeim þegar verkefnið þarf á þeim að halda.

Hafa samband

Sendið mér línu

Segið mér frá rekstrinum og hverju þið viljið breyta. Ég svara með tillögu að fyrsta fundi.

Senda póst

Netfang
ragnar@cognia.is
Sími
787 0886
LinkedIn
ragnaragustsson