Spurningar
Algengar spurningar
Stutt svör við því sem fólk spyr oftast um. Smáatriðin eru í handbókinni sem viðskiptavinir fá og í verksamningnum.
Þjónustan
- Hvað gerir Cognia?
- Cognia ehf. er ráðgjafarstofa mín, Ragnars Þ. Ágústssonar, í Reykjavík. Ég hjálpa fyrirtækjum að nýta gervigreind, frá stefnu og forgangsröðun til smíði á lausnum á gögnum fyrirtækisins sjálfs, og mæli árangurinn þar sem það er hægt. Ég vinn inni í fyrirtækinu með ykkar fólki.
- Hver er Ragnar Þ. Ágústsson?
- Ég hef smíðað og rekið kerfi í 25 ár, mest í fjármálaþjónustu. Ég var ellefu ár í London, stýrði hugbúnaðarþróun Landsbankans og var forstöðumaður upplýsingatækni Fossa fjárfestingarbanka. Ég stofnaði Sóleyju og útskrifast með Executive MBA frá Háskóla Íslands 2027.
- Hvað er gervigreindarstjóri til leigu?
- Gervigreindarstjóri til leigu (fractional CAIO) leiðir gervigreindarmálin í fyrirtæki án þess að vera fastráðinn: forgangsröðun, notkunarreglur, reglurnar sem fylgja hverri lausn, rýni á tilboðum seljenda og skýrslur til stjórnar. Ég get bæði leitt og smíðað, eða leitt eingöngu, eftir því hvað hentar ykkur. Ég hef hvorki mannaforráð né prókúru.
- Hvað er erindreki?
- Forrit sem les gögnin ykkar og vinnur afmarkað verk eftir reglum sem þið setjið, til dæmis greiningu á tekjum og kostnaði, á samskiptum við viðskiptavini eða samantekt úr kerfunum ykkar, hvort sem það er fjárhagskerfi, CRM, þjónustuborð eða bókunarkerfi. Í upphafi samþykkir manneskja hvert skrif.
- Hvernig byrjar samstarf?
- Á samtali, oft með sjálfsmati á cognia.is á undan, og ókeypis fyrsta fundi. Næst kemur greining. Hún byrjar á því að endurhugsa verkin: ef við værum að byggja þetta í dag, myndum við byggja það svona? Síðan veljum við verkin sem borga sig, með mælikvarða og grunnlínu, og ég segi hreint út hvort þetta borgi sig.
- Hvenær fer fyrsta lausnin í gang?
- Það fer eftir verkinu og kerfunum, og ég segi ykkur það eftir greininguna. Í upphafi samþykkir manneskja hvert skrif og gamla leiðin er til taks þar til nýja leiðin hefur sannað sig.
Verð og umfang
- Hvað kostar þetta?
- Það fer eftir stærð fyrirtækisins og verkefninu. Fyrsti fundur er ókeypis. Eftir hann fáið þið efni og tilboð sem er sniðið að ykkur. Líkön og ský eru alltaf á ykkar eigin reikningum á kostnaðarverði.
Gögn og eignarhald
- Hver á það sem er smíðað?
- Þið. Kóðinn, gögnin, lyklarnir, reikningarnir og öll umhverfi eru á ykkar nafni frá fyrsta degi. Þið eruð hvorki bundin mér né neinum tækniseljanda og getið haldið áfram án mín. Ég vil heldur ekki að þið farið úr einni seljandalæsingu í aðra.
- Hvar eru gögnin?
- Allt sem við smíðum og geymum er í ykkar eigin kerfum. Líkanið keyrir til dæmis hjá Amazon Web Services innan Evrópu, á ykkar eigin reikningi. Þá er AWS vinnsluaðili og Anthropic hefur engan aðgang að fyrirspurnum eða svörum. Reikningurinn er stilltur svo ekkert sé geymt og gögnin ykkar eru aldrei notuð til þjálfunar. Ef önnur leið hentar betur er hún skrifuð niður.
- Hvað um persónuvernd og vinnslusamning?
- Þið eruð ábyrgðaraðili persónuupplýsinganna og þær eru unnar á ykkar eigin reikningum. Þar sem erindreki vinnur með persónuupplýsingar gerum við vinnslusamning (data processing agreement) og stutt mat á áhrifum á persónuvernd áður en hann fer í gang. Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd. Erindrekarnir þjálfa ekki líkön á ykkar gögnum.
- Hvaða gervigreindarlíkan notar þú?
- Oftast Claude frá Anthropic. Hver erindreki hefur varalíkan frá öðrum framleiðanda sem er prófað reglulega, svo hægt er að skipta án endursmíði. Einfaldari erindrekar geta líka keyrt á opnu líkani á ykkar eigin vél.
- Hvað gerist ef erindreki gerir villu?
- Greiðslur, samninga og breytingar á upplýsingum um viðskiptavini þarf alltaf nafngreind manneskja að samþykkja. Hver aðgerð er skráð í atvikaskrá sem þið geymið, og þið getið stöðvað hvern erindreka strax án mín.
Hagsmunir
- Ertu óháður?
- Enginn seljandi borgar mér. Ég tek hvorki söluþóknanir né tilvísunargjöld og fæ ekkert ef þið veljið annað tól eða smíðið sjálf. Hver tillaga um að kaupa eða smíða nefnir valkostina sem voru skoðaðir.
- Hvaða hagsmuni hefur þú?
- Ég á Sóleyju, bókunarrás fyrir íslenska ferðaþjónustu. Ég segi það á fyrsta fundi. Þið getið tekið fyrirtækin mín út fyrir sviga hvenær sem er.
Hafa samband
- Hvernig hef ég samband?
- Netfang ragnar@cognia.is, sími 787 0886 eða LinkedIn. Segðu mér hvaða kerfi þið notið og hvaða tölu þú vilt bæta.
- Vinnur þú utan Íslands?
- Já, á íslensku og ensku, á staðnum í Reykjavík eða í fjarvinnu innan Evrópu. Verkefni utan Íslands eru verðlögð í evrum.