Traust og öryggi

Það sem fylgir hverju verki

Hér er nánar sagt frá eignarhaldi, reglunum sem fylgja hverri lausn, öryggi og persónuvernd, mælingu árangurs og óhæði mínu. Smáatriðin standa í handbókinni sem viðskiptavinir fá og í verksamningnum.

Eignarhald

Hugbúnaður sem þið eigið

Kóðinn, lyklarnir og öll umhverfi eru ykkar frá fyrsta degi. Þið eruð hvorki bundin mér né neinum tækniseljanda. Ég vil heldur ekki að þið farið úr einni seljandalæsingu (vendor lock-in) í aðra. Þið eigið að geta skipt um líkan, þjónustu og ráðgjafa þegar betra býðst.

  • Allt á ykkar nafni

    Kóðasafn, skýreikningur, gagnagrunnur, lyklar, öpp og atvikaskrá eru stofnuð á ykkar nafni.

  • Opin tækni

    Til dæmis opni gagnagrunnurinn PostgreSQL og MCP, opinn staðall fyrir tengingar við gervigreind. Ég nota það sem hentar ykkur. Að skipta um líkan eða skýjaþjónustu er stillingaratriði.

  • Þið fylgið tækninni

    Þegar betra líkan eða ódýrari þjónusta býðst skiptið þið. Hver lausn sem notar líkan getur haft varalíkan frá öðrum framleiðanda sem er prófað reglulega.

  • Þið haldið áfram án mín

    Útgöngupróf sýnir að ykkar fólk eða UT-þjónustuaðili ykkar getur rekið allt, breytt því og endurheimt það án mín. Ef útgöngupróf sýnir að eitthvað krefst minnar aðkomu laga ég það án endurgjalds, eins og segir í verksamningnum.

Reglur

Reglur sem fylgja hverri lausn

Það er áhætta að leyfa gervigreind að gera hvað sem er. Þegar lausn fær aðgang að gögnunum ykkar, hvort sem það er erindreki eða tenging, gilda þessar reglur frá fyrsta degi og standa í samningnum. Þið fáið reglurnar líka sem innra eftirlit, á sniðmáti sem stjórn og endurskoðandi þekkja.

  • Aðeins lesaðgangur í upphafi

    Lausnin sér aðeins þau gögn sem þið hafið samþykkt.

  • Heimildir vinnast með reynslu

    Í upphafi samþykkir manneskja hvert skrif. Greiðslur og samninga samþykkir alltaf nafngreind manneskja.

  • Ykkar eigin reikningar

    Lyklar, gögn og líkan eru á reikningum sem þið eigið.

  • Texti utan frá er gögn

    Það sem kemur inn í pósti eða af vef getur aldrei skipað lausninni fyrir.

  • Hver aðgerð er skráð

    Atvikaskrá sem þið geymið og getið sýnt stjórn, endurskoðanda eða Persónuvernd.

  • Þið getið stöðvað hana strax

    Hverja lausn má stöðva strax án þess að hringja í mig.

Öryggi

Netöryggi, upplýsingaöryggi og persónuvernd

Ég bar ábyrgð á upplýsingatækni og upplýsingaöryggi í fjármálafyrirtækjum undir eftirliti. Öryggið hjá ykkur tekur mið af því sem er í húfi.

  • Aðgangur og dulkóðun

    Hver lausn og hver notandi fær aðeins þann aðgang sem verkið krefst, með fjölþátta auðkenningu. Lyklar eru í lyklageymslu og gögn eru dulkóðuð.

  • Persónuupplýsingar

    Þið eruð ábyrgðaraðili. Þar sem lausn vinnur með persónuupplýsingar gerum við vinnslusamning og mat á áhrifum á persónuvernd áður en hún fer í gang.

  • Atvik

    Ef eitthvað fer úrskeiðis fáið þið strax að vita hvað gerðist og hvað var gert.

Hvar gögnin eru

Allt sem við smíðum og geymum er í ykkar eigin kerfum. Líkanið keyrir til dæmis hjá Amazon Web Services innan Evrópu, á ykkar eigin reikningi. Þá er AWS vinnsluaðili og Anthropic hefur engan aðgang að fyrirspurnum eða svörum. Reikningurinn er stilltur svo ekkert sé geymt og gögnin ykkar eru aldrei notuð til þjálfunar.

Mæling

Árangur sem þið getið sýnt

Í krónum þar sem það er hægt og tölurnar eru bornar saman við bókhaldið. Þar sem það er ekki hægt notum við mælikvarða sem þið treystið.

  • Grunnlína

    Byggð á sögu ykkar og borin saman við eftirspurn í landinu, svo árstíðasveiflur trufli ekki mælinguna.

  • Samanburður

    Þar sem hægt er fer lausnin í gang í áföngum. Það sem ekki var snert sýnir hvað hefði gerst hvort eð er.

  • Tími

    Sparaður tími er aðeins talinn í krónum þegar hann sparar raunverulegan launakostnað.

  • Skýrsla

    Ein blaðsíða á mánuði, borin saman við uppgjör og bókhald.

Óhæði

Fimm spurningar sem þið ættuð að spyrja hvern ráðgjafa

Hver borgar þér?
Aðeins þið, samkvæmt samningi og reikningi. Engin söluþóknun, engin tilvísunargjöld og engin álagning frá neinum seljanda.
Er þér borgað fyrir að kynna einhverja vöru?
Nei. Ég fylgist með tækninni hjá öllum helstu seljendum, en enginn þeirra borgar mér neitt.
Færðu eitthvað ef við veljum annað tól eða smíðum sjálf?
Nei. Ég fæ aðeins greitt fyrir mína vinnu, hvaða leið sem þið veljið.
Seturðu valkosti á blað?
Já. Hver tillaga um að kaupa eða smíða nefnir valkostina sem voru skoðaðir og hvers vegna þeir urðu undir.
Myndirðu ráðleggja okkur að gera ekkert?
Já, þegar það er rétta svarið.

Hafa samband

Viltu vita meira?

Ég fer yfir þetta með ykkur á fyrsta fundi. Hann er ein klukkustund og kostar ekkert.

Bóka fyrsta fund