Persónuvernd

Persónuverndarstefna cognia.is

Vefurinn notar engar vafrakökur og safnar engu sem auðkennir þig. Hér er sagt nákvæmlega hvað er skráð og hvers vegna.

Uppfært 15. október 2026

Hver ber ábyrgð

Cognia ehf., kt. 670421-0900, Háteigsvegi 32, 105 Reykjavík, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem vefurinn cognia.is og netfangið ragnar@cognia.is safna. Fyrirspurnum um persónuvernd má beina á ragnar@cognia.is eða í síma 787 0886.

Þegar þú skoðar vefinn

Ég nota Vercel Web Analytics til að telja heimsóknir. Engar vafrakökur eru notaðar. Fyrir hverja heimsókn er skráð: tími, slóð síðunnar, hvaðan þú komst, land og borg út frá IP-tölu, tegund tækis, stýrikerfi og vafri. IP-talan sjálf er ekki geymd. Heimsóknir eru aðgreindar með tætigildi (hash) af beiðninni og því er hent eftir 24 klukkustundir. Ég sé aðeins samanteknar tölur og get ekki rakið þær til einstaklinga.

Auk heimsókna tel ég nokkra atburði: þegar sjálfsmat er hafið, þegar því er lokið, þegar niðurstaðan er afrituð, og þegar smellt er á netfang eða á LinkedIn. Atburðirnir bera aðeins heiti, aldrei svör, texta eða netföng.

Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum af því að vita hvaða efni nýtist og hvort vefurinn virkar.

Sjálfsmatið

Svörin í sjálfsmatinu eru reiknuð í vafranum þínum. Þau eru hvorki send né vistuð. Ef þú velur að senda mér niðurstöðuna fer hún með tölvupósti sem þú sendir sjálf eða sjálfur.

Tölvupóstur og fyrirspurnir

Ef þú sendir mér póst nota ég hann til að svara þér og undirbúa fund ef þú óskar þess. Ég geymi póstinn meðan samskiptin standa yfir. Ef samningur verður til eru gögn sem tengjast honum geymd eins lengi og lög um bókhald kveða á um. Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum af því að svara, eða á ráðstöfunum að þinni beiðni áður en samningur er gerður.

Hverjir vinna gögnin

  • Vercel Inc. hýsir vefinn og annast talningu heimsókna sem vinnsluaðili. Vercel er bandarískt fyrirtæki og vottað samkvæmt gagnaverndarramma ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework), sem er grundvöllur flutnings gagna þangað. Við afhendingu síðna vinnur Vercel IP-tölu, staðsetningu út frá henni og upplýsingar um vafra, meðal annars til öryggis.
  • Pósthýsing fyrir ragnar@cognia.is er hjá þjónustuaðila sem er vinnsluaðili Cognia.

Letrið á vefnum er hýst á vefnum sjálfum, svo engar beiðnir fara til Google eða annarra þegar síðan hleðst.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar ég hef um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu, takmarka hana og fá gögnin afhent. Sendu beiðni á ragnar@cognia.is og ég svara innan mánaðar. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar.

Um vinnsluna gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.